Nýtt hjá Nordic Games: Mecanix - Stórskemmtilegt kænskuspil fyrir 2 leikmenn frá Dr Wood
Stórskemmtilegt og ávanabindandi kænskuspil fyrir tvo
Annar leikmaður fær rauð hjól og hinn fær blá hjól, efst á leikborðinu er gult hjól. Leikmenn skiptast á að leggja hjól á leikborðið. Það eru 2 leiðir til að vinna, annað hvort að byggja keðju að gula hjólinu þannig að maður nái að snúa því með því að snúa fyrsta hjólinu í keðjunni og mynda þannig keðjuverkun eða þá að ná að eyðileggja keðju andstæðingsins með því að leggja hjól niður á leikborðið þannig að það nær að læsa keðjunni.
Fyrir hverja er Mecanix?
- Alla sem elska kænskuleiki sem auðvelt er að læra
- Fyrir þá sem þykir gaman að þjálfa hugann
Sjá kynningarmyndband frá Dr Wood: