Nú þarf engum að leiðast í fermingarveislunni eða sumarbústaðinum framar :) Við höfum fengið í hús 5 bráðskemmtilegar gestaþrautir frá Dr Wood sem eru nauðsynlegar á hvert heimili, sumarbústað, vinnustað, biðstofu...í raun hvar sem er. Þrautirnar eru miserfiðar en allar eiga þær það sameiginlegt að vera flóknari (og þar af leiðandi skemmtilegri) en þær líta út í fyrstu.
Þrautirnar eru allar hannaðar af sálfræðingnum Dr. Mark Thornton Wood og eðlisfræðingnum og stærðfræðingnum Francis Henry Dyksterhuis en þeir starfa báðir fyrir ástralska leikja- og þrautaframleiðandann Dr Wood og hafa getið sér gott orð fyrir skemmtileg og ögrandi spil og gestaþrautir.
Þrautirnar tilheyra allar the Mind Challenge Classic Series frá DR Wood en sú vörulína samanstendur af gestaþrautum hver annari snúnari og skemmtilegri. Sumar eru samansettar úr gömlum humgmyndum en aðrar hafa kviknað úr frjóum hugum uppfinningamannanna sem nefndir eru hér að ofan.
Skoðaðu úrvalið af gestaþrautunum hér