A A A
English
Fréttir
27.7.2010
Ný púsluspil frá Schmidt

Vorum að fá í hús FULLT af nýjum og skemmtilegum púslum frá Schmidt. Eitthvað fyrir alla aldurshópa og áhugamál. 2 nýjir listamenn:   Kazuha FukamiJapanskur fantasíulistamaður. Mikið í hetjum og gullfallegum kvennskörungum.Skoða vörur Zena HollowayLjósmyndari sem hefur sérhæft sig í að taka myndir í ofaní vatni. Myndirnar hafa sérstakt yfirbragð friðsældar og eru mjög dr...

27.7.2010
Ný púsluspil frá Jumbo

Ný sending af púslum frá Jumbo komin í hús. 2 ný Wasgij púsl: Wasgij Dansinn dunar Wasgij Original nr 17 - 1000 bitarÞað lítur út fyrir að dansararnir hafi sett á svið bestu sýningu lífs þeirra og svo er líka svo vel mætt. En af hverju eru allir þá svona skelkaðir á svipinn? Það er þitt verkefni að komast að því... Skoða vöru hér           Wasgij Gleðileg jólWasgij jólapúsl nr 6 - 1...

27.7.2010
Skemmtileg barna- og ferðaspil frá Schmidt

Vorum að fá í hús fullt af skemmtilegum barna- og ferðaspilum frá Schmidt. Nú þarf engum að leiðast lengur í löngu bílferðinni í sumarbústaðinn eða útileguna. Barnaborðspil:   Klickado Skemmtilegt spil fyrir hressa krakka sem er líkt klassíska spilinu Mikado - Hér þurfa leikmenn að leggja prjónana á leikborðið í stað þess að fjarlægja þá. Lítill broddgöltur úr fjölleikahúsi reynir listir...

Póstlisti

Skráið ykkur á póstlista nordicGames.

Skrá
Skemmtileg barna- og ferðaspil frá Schmidt

Vorum að fá í hús fullt af skemmtilegum barna- og ferðaspilum frá Schmidt. Nú þarf engum að leiðast lengur í löngu bílferðinni í sumarbústaðinn eða útileguna.

Barnaborðspil: 
 
Klickado 
Skemmtilegt spil fyrir hressa krakka sem er líkt klassíska spilinu Mikado - Hér þurfa leikmenn að leggja prjónana á leikborðið í stað þess að fjarlægja þá.
Lítill broddgöltur úr fjölleikahúsi reynir listir sínar í loftfimleikarólu. En hvað varð um broddana hans? Leikmennirnir hafa „broddaprjóna“ sem þeir nota í spilinu. Þeim sem tekst að smella öllum prjónunum sínum á broddgöltinn eða koma þeim haganlega fyrir vinnur spilið.
Þetta krefst bæði útsjónarsemi og nákvæmni...
Skoða vöru hér
 
    
Leyndardómsfulla völundarhúsið
Hviss bang búmm! Litlu töframennirnir gapa af undrun. Er veggur hérna? Töframennirnir verða að rannsaka leyndardómsfulla völundarhúsið gaumgæfilega. Í dag þurfa þeir að leysa mikilvægt verkefni – leitina að töfratáknunum! Þetta væri nú ekki svo flókið ef stóru töframennirnir væru ekki alltaf að stríða þeim. Leiðum er lokað líkt og töfrum hafi verið beitt og leynigöng finnast víða.

Leikmenn reyna að komast í gegnum leyndardómsfulla völundarhúsið með töfratáknunum sínum og verða fyrstir til að safna 5 táknum. 
Skoða vöru hér 
 
     
Ferðaspil:
 
Bingó
Hið klassíska bingó - Tilvalið fyrir alla fjölskylduna
Bingóstjórnandi er valinn og hann sér um að draga númer, tilkynna þau hátt og snjallt og setja þau á númeraspjaldið sitt. Leikmenn nota bingóflögur til þess að setja yfir tölu sem kölluð er upp. Sá leikmaður sem fyrstur nær 5 bingóflögum í röð og kallar Bingó sigrar leikinn og tekur við sem næsti bingóstjórnandi.
Skoða vöru hér
 
Bílabingó
Bílferðin verður leikur einn með bílabingó við höndina!
Leikmenn fá bingóspjald með myndum á og penna í hönd. Takmarkið er að finna hluti í umhverfinu sem passa við myndirnar á spjaldinu, þegar það gerist þá strikar leikmaður yfir viðkomandi mynd. Fyrsti leikmaðurinn til að strika yfir 5 myndir í röð og kalla hátt og snjallt BINGÓ vinnur spilið.
Skoða vöru hér
 
Dýralottó
Klassískt lottó spil með dýraþema!
Börnunum þarf ekki að leiðast í ferðalaginu með þetta skemmtilega lottó spil við hendina. Á spjöldunum eru fallegar myndir af framandi dýrum sem finna má í dýragörðum.
Skoða vöru hér
 
Stricki
Skemmtileg frönsk prjónadúkka fyrir krakka sem hafa gaman af hannyrðum. Dúkkan er úr við og fylgir einnig með viðarprjónn og garn í fallegum litum.
Skoða vöru hér
 
Domino Junior
Fallegt og litríkt Domino fyrir yngstu kynslóðina.
Spilið byggir á hinu klassíska Domino spili sem allir elska. Þetta spil er myndskreytt með stórum fallegum myndum og spjöldin eru stór þannig að litlar hendur eiga auðveldara með að færa þau til.
Skoða vöru hér
Bella Sara minnisleikur
Velkomin í heim glæsilegra hesta, töfra og fegurðar. Í Bella Sara er ýmindunaraflinu engin takmörk sett.
Hin klassíski minnisleikur þar sem leikmenn þurfa að para saman 2 spil sem eru eins. Spilinu er lokið þegar búið er að snúa öllum spilunum við á borðinu og ekkert er eftir. Sá leikmaður sem er með flest pörin/spilin sigrar.
Skoða vöru hér