A A A
English
Póstlisti

Skráið ykkur á póstlista nordicGames.

Skrá
Fréttir
15.12.2011
Nýjar vörur frá Days of Wonder

Vorum að fá í hús hið sívinsæla borðspil Memoir '44 og tvær Ticket to Ride viðbætur frá Days of Wonder: Memoir '44 Vinsælt 2ja manna herkænskuspil Memoir '44 er grunnspilið í margverðlaunaðri herkænskuspilalínu. Um er að ræða einstakt sögulegt borðspil...

5.12.2011
Ný Disney púsl frá King

Vorum að fá í hús glæsileg 50-100 bita Disney/Pixar púsl og 3 í pakka: Cars og Bangsímon 3 í pakka 3 púsl í pakka frá Disney með flottum myndum af Lightning McQueen og bílavinum hans annars vegar og Bangsímon og vinum hans hins vegar. Mismunandi bitastærð er á púslunum o...

28.11.2011
Ný púsl frá Castorland

Vorum að fá í hús fullt af flottum og skemmtilegum púslum frá Castorland: Barnapúsl Litrík og skemmtileg 30-120 bita púsl fyrir 3ja-5 ára og upp úr. Öll börn geta fundið eitthvað fyrir sig í þessari fjölbreyttu sendingu; til dæmis spennandi H.C. Andersen ævintýri...

Ný púsluspil frá Schmidt

Vorum að fá í hús FULLT af nýjum og skemmtilegum púslum frá Schmidt. Eitthvað fyrir alla aldurshópa og áhugamál.

2 nýjir listamenn: 
 
Kazuha Fukami
Japanskur fantasíulistamaður. Mikið í hetjum og gullfallegum kvennskörungum.
Skoða vörur

Zena Holloway
Ljósmyndari sem hefur sérhæft sig í að taka myndir í ofaní vatni. Myndirnar hafa sérstakt yfirbragð friðsældar og eru mjög draumkenndar og fallegar. Myndirnar á púslunum eru byggðar á barnasögunni Water Babies eftir (1863) eftir Charles Kingsley.
Skoða vörur

   

2 nýjar vörulínur:
 
Molly & Macy
Skemmtilegar og fallegar ljósmyndir af eineggja tvíburunum Molly og Macy, en af þeim skín einskær leikgleði og sakleysi barnsins. Myndirnar hafa notið ómældra vinsælda um heim allan og eru einnig til sem gjafakort, plaköt, almanök ofl.
Skoða vörur

  

Tattoo Art
Skemmtilegar húðflúrsmyndir. Mjög litríkar og töff.
Skoða vörur

 

Önnur ný púsl fyrir 12+
Einnig bættust ný púsl við söfn annara listamanna. Má þar helst nefna Josephine Wall, Nene Thomas, Renato Casaro, Sam Park og Thomas Kinkade.

Skoða öll 500 bita Schmidt púslin
Skoða öll 1000 bita Schmidt púslin
Skoða öll 1500 bita Schmidt púslin
Skoða öll 2000 bita Schmidt púslin

 

Mini (vasa) púsl:
2 tegundir af púslum sem eru í smágerðum umbúðum og fara því vel í vasa eða veski. Púslin eru 54 og 121 bita en þau síðarnefndu eru samansett úr sérstaklega fíngerðum bitum og seljast í fallegri málmöskju.
Skoða vörur

   

Barnapúsl
 
Bella Sara
Velkomin í heim glæsilegra hesta, töfra og fegurðar. Í Bella Sara er ýmindunaraflinu engin takmörk sett. Bella Sara línan er vinsæl meðal ungra stúlkna um heim allan þar sem sérstakt samband hests og ungrar einmanna stúlku er í forgrunni.
Falleg 100-200 bita púsl frá þessari skemmtilegu vörulínu og einnig sérstök 77 bita púsl í hjartalaga málmöskjum.
Skoða vörur

 

4 púsl í fallegu málmboxi með haldfangi
4 púsl saman í einum pakka með Playmobil þema, Bella Sara þema og Tommi Togvagn þema. Púslin seljast í fallegu málmboxi með haldfangi sem getur nýst td sem nestisbox eða lítil hirsla fyrir smádót þegar að fara á í leiðangur.
Skoða vörur

 

2 púsl í pakka
Falleg og skemmtileg 2 x 26 og 2 x 48 bita púsl í einum pakka. Allir krakkar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, td sirkus, byggingasvæði, Eini Einhyrningur, Ævintýraland ofl.
Skoða vörur

 

Önnur ný barnapúsl
- 60 bita púsl
-100 bita púsl
- 150 bita púsl
- 200 bita púsl