Vorum að fá í hús fullt af flottum og skemmtilegum púslum frá Castorland:
Barnapúsl
Litrík og skemmtileg 30-120 bita púsl fyrir 3ja-5 ára og upp úr. Öll börn geta fundið eitthvað fyrir sig í þessari fjölbreyttu sendingu; til dæmis spennandi H.C. Andersen ævintýri, töff tryllitæki, flott fantasíupúsl, stórar vinnuvélar og dúllulega hvolpa og kettlinga. Hér er hægt að finna hina fullkomnu jólagjöf handa hverju barni, sama hvar áhugasviðið liggur.
Fullorðinspúsl
Glæsileg og fjölbreytt 500-3000 bita púsl fyrir púsláhugamanninn komu einnig í þessari sendingu. Um mjög fjölbreytt púsl eru að ræða og því ætti hver sem er að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Klassísk málverk og uppstillingar, fjölbreytt og villt dýralíf, fallegar útsýnismyndir og glæsilegt heimskort er meðal þeirra púsla sem er að finna í sendingunni.
Sjón er sögu ríkari!
Skoða öll nýju Castorland púslin