A A A
English
Póstlisti

Skráið ykkur á póstlista nordicGames.

Skrá
Fréttir
15.12.2011
Nýjar vörur frá Days of Wonder

Vorum að fá í hús hið sívinsæla borðspil Memoir '44 og tvær Ticket to Ride viðbætur frá Days of Wonder: Memoir '44 Vinsælt 2ja manna herkænskuspil Memoir '44 er grunnspilið í margverðlaunaðri herkænskuspilalínu. Um er að ræða einstakt sögulegt borðspil sem líkir eftir bardögum úr seinni heimstyrjöldinni. Leikmenn stýra flokki plasthermanna í bardögum úr seinni heimstyrjöldinni á stóru ...

5.12.2011
Ný Disney púsl frá King

Vorum að fá í hús glæsileg 50-100 bita Disney/Pixar púsl og 3 í pakka: Cars og Bangsímon 3 í pakka 3 púsl í pakka frá Disney með flottum myndum af Lightning McQueen og bílavinum hans annars vegar og Bangsímon og vinum hans hins vegar. Mismunandi bitastærð er á púslunum og þannig getur barnið þreifað sig áfram frá því auðveldasta (4 bitar) til erfiðasta (16 bitar) 50-100 bita Disney/Pi...

28.11.2011
Ný púsl frá Castorland

Vorum að fá í hús fullt af flottum og skemmtilegum púslum frá Castorland: Barnapúsl Litrík og skemmtileg 30-120 bita púsl fyrir 3ja-5 ára og upp úr. Öll börn geta fundið eitthvað fyrir sig í þessari fjölbreyttu sendingu; til dæmis spennandi H.C. Andersen ævintýri, töff tryllitæki, flott fantasíupúsl, stórar vinnuvélar og dúllulega hvolpa og kettlinga. Hér er hægt að finna hina fullkomnu jó...

Nýjar vörur frá Days of Wonder

Vorum að fá í hús hið sívinsæla borðspil Memoir '44 og tvær Ticket to Ride viðbætur frá Days of Wonder:

Memoir '44
Vinsælt 2ja manna herkænskuspil

Memoir '44 er grunnspilið í margverðlaunaðri herkænskuspilalínu. Um er að ræða einstakt sögulegt borðspil sem líkir eftir bardögum úr seinni heimstyrjöldinni. Leikmenn stýra flokki plasthermanna í bardögum úr seinni heimstyrjöldinni á stóru tvöföldu leikborði. Hver bardagi er eftirlíking sögulegs bardaga á svæðinu, hermanna og markmiða þeirra.
Spilið er auðvelt að læra og gengur vel fyrir sig en til að vinna þarf herkænsku, heppni í teningakasti og herskáa en sveigjanlega bardagaáætlun.

Skoða/panta vöru


Ticket to Ride India
Glæsileg viðbót við Ticket to Ride spilin

Ticket to Ride India – map collection vol. 2 er ný viðbót sem inniheldur bæði kort af Indlandi og Sviss. Á Indlandskortinu fara leikmenn fara í einstaka ferð um Indland árið 1911 en auka bónusstig fást fyrir hverja lestarleið með 2 eða fleiri leiðum milli áfangastaðanna. Ticket to Ride Sviss er sérstaklega hannað fyrir 2-3 leikmenn en það leiðir þá í gegnum hina djúpu dali og þröngu fjallaskörð landsins.
- Spilast sem viðbót við Ticket to Ride U.S.A. og Ticket to Ride Evrópa

Skoða/panta vöru


Ticket to Ride Asia
Glæsileg viðbót við Ticket to Ride spilin

Ticket to Ride Asia - map collection vol. 1 er ný viðbót sem inniheldur bæði Team Asia, sem er fyrir 4 -6 leikmenn þar sem hópfélagar keppast saman við að fara yfir 25.000 km leið um hina töfrandi Asíu, og Legendary Asia kort, sem er fyrir 2-5 leikmenn þar sem einstaklingar reyna að ferðast m.a. um Silkileiðina, gegnum afkima Indókína og um hin varasömu Himalaya-fjöll!
- Spilast sem viðbót við Ticket to Ride U.S.A. og Ticket to Ride Evrópa

Skoða/panta vöru