Áfram fyrsti bekkur!
Stórskemmtilegt spil og góður undirbúningur fyrir grunnskóla
Spilið skiptist í þrjá hluta:
- 36 litlir leikir sem þjálfa námshæfileika. Tilbúin svör gefa barninu jákvætt aðhald þar sem það getur leiðrétt mistök sín sjálft - en getur einnig virkað sem tæki fyrir foreldra til að taka þátt í námsþroska barnsins.
- 36 litlir leikir sem þjálfa samhæfingu og skrift. Blaðsíðurnar eru með þunnu plastlagi svo auðvelt er að stroka út og byrja aftur.
- 16 spjöld með mismunandi formum sýna mun á tvívídd og þrívídd. Æfir skynjun barnsins á formum og þjálfar sjón- og rýmisminni. Þessi leikur var hannaður af nokkrum virtum barnasálfræðingum til þess að vera skemmtilegur jafnt sem fræðandi. Börnin una sér vel við þetta spil og læra heilmikið í leiðinni.
Eykur hæfni grunnskólabarna á fjölmörgum sviðum:
- Reikningur
- Fjölvíddarnæmi
- Stærðarhlutföll
- Lögun hluta
- Að greina smáatriði
- Röðun
- Rýmisáttun
- Skrift
- Talnaritun
- Stafaritun