Mini Wasgij fjallavegur
Mini Wasgij nr 7
Rólegur hjólreiðatúr á friðsælum fjallavegi...eða hvað? Hví er fólkið í bakgrunninum svona skelkað? Það er þitt verkefni að komast að því...
Stórskemmtilegt og óhefðbundið 54 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur gefur vísbendingu um hana. Sá sem púslar þarf því að nota ýmindunaraflið til að leysa gátuna. Ögrunin felst í því að lokaútkoman er í raun ekki sú sama og myndin utaná kassanum en sýnir þess í stað sjónarhorn persónanna sem þar eru.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!