A A A
English
Póstlisti

Skráið ykkur á póstlista nordicGames.

Skrá
Fréttir
15.12.2011
Nýjar vörur frá Days of Wonder

Vorum að fá í hús hið sívinsæla borðspil Memoir '44 og tvær Ticket to Ride viðbætur frá Days of Wonder: Memoir '44 Vinsælt 2ja manna herkænskuspil Memoir '44 er grunnspilið í margverðlaunaðri herkænskuspilalínu. Um er að ræða einstakt sögulegt borðspil...

5.12.2011
Ný Disney púsl frá King

Vorum að fá í hús glæsileg 50-100 bita Disney/Pixar púsl og 3 í pakka: Cars og Bangsímon 3 í pakka 3 púsl í pakka frá Disney með flottum myndum af Lightning McQueen og bílavinum hans annars vegar og Bangsímon og vinum hans hins vegar. Mismunandi bitastærð er á púslunum o...

28.11.2011
Ný púsl frá Castorland

Vorum að fá í hús fullt af flottum og skemmtilegum púslum frá Castorland: Barnapúsl Litrík og skemmtileg 30-120 bita púsl fyrir 3ja-5 ára og upp úr. Öll börn geta fundið eitthvað fyrir sig í þessari fjölbreyttu sendingu; til dæmis spennandi H.C. Andersen ævintýri...

Barnaspil
Klickado

Lítill broddgöltur úr fjölleikahúsi reynir listir sínar í loftfimleikarólu. En hvað varð um broddana hans? Leikmennirnir hafa „broddaprjóna“ sem þeir nota í spilinu. Þeim sem tekst að smella öllum prjónunum sínum á broddgöltinn eða koma þeim haganlega fyrir vinnur spilið.
Þetta krefst bæði útsjónarsemi og nákvæmni...

Skemmtilegt spil fyrir hressa krakka sem er líkt klassíska spilinu Mikado - Hér þurfa leikmenn að leggja prjónana á leikborðið í stað þess að fjarlægja þá.

Innihald

- 12 langir prjónar með málmhring
- 20 langir prjónar án málmhrings
- 20 stuttir prjónar
- 2 tréstangir
- 1 málmstöng
- 1 broddgöltur (segul þríhyrningur)
- 1 leikborð
- 1 leiðbeiningar

Höfundur: Christian Sovis
Framleiðandi: Drei magier spiele
Aldur

5+

Tegund

Heilabrot

Fyrir 1 - 5 leikmenn

Leiðbeiningar
Verð: 8.900 kr. Bæta í körfu