Wasgij Dansinn dunar
Wasgij Original nr 17
Það lítur út fyrir að dansararnir hafi sett á svið bestu sýningu lífs þeirra og svo er líka svo vel mætt. En af hverju eru allir þá svona skelkaðir á svipinn? Það er þitt verkefni að komast að því...
Stórskemmtilegt og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur gefur vísbendingu um hana. Sá sem púslar þarf því að nota ýmindunaraflið til að leysa gátuna. Ögrunin felst í því að lokaútkoman er í raun ekki sú sama og myndin utaná kassanum en sýnir þess í stað sjónarhorn persónanna sem þar eru.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!