A A A
English
Póstlisti

Skráið ykkur á póstlista nordicGames.

Skrá
Fréttir
15.12.2011
Nýjar vörur frá Days of Wonder

Vorum að fá í hús hið sívinsæla borðspil Memoir '44 og tvær Ticket to Ride viðbætur frá Days of Wonder: Memoir '44 Vinsælt 2ja manna herkænskuspil Memoir '44 er grunnspilið í margverðlaunaðri herkænskuspilalínu. Um er að ræða einstakt sögulegt borðspil sem líkir eftir bardögum úr seinni heimstyrjöldinni. Leikmenn stýra flokki plasthermanna í bardögum úr seinni heimstyrjöldinni á stóru ...

5.12.2011
Ný Disney púsl frá King

Vorum að fá í hús glæsileg 50-100 bita Disney/Pixar púsl og 3 í pakka: Cars og Bangsímon 3 í pakka 3 púsl í pakka frá Disney með flottum myndum af Lightning McQueen og bílavinum hans annars vegar og Bangsímon og vinum hans hins vegar. Mismunandi bitastærð er á púslunum og þannig getur barnið þreifað sig áfram frá því auðveldasta (4 bitar) til erfiðasta (16 bitar) 50-100 bita Disney/Pi...

28.11.2011
Ný púsl frá Castorland

Vorum að fá í hús fullt af flottum og skemmtilegum púslum frá Castorland: Barnapúsl Litrík og skemmtileg 30-120 bita púsl fyrir 3ja-5 ára og upp úr. Öll börn geta fundið eitthvað fyrir sig í þessari fjölbreyttu sendingu; til dæmis spennandi H.C. Andersen ævintýri, töff tryllitæki, flott fantasíupúsl, stórar vinnuvélar og dúllulega hvolpa og kettlinga. Hér er hægt að finna hina fullkomnu jó...

Fjölskylduspil
Dixit

Spil ársins 2010 og stórskemmtilegt fjölskyldu- og partýspil
Þetta margverðlaunaða fjölskyldu- og partýspil hefur farið sigurför um heiminn og var meðal annars valið „Spil ársins 2010“ í Þýskalandi (Spiel des Jahres) en það eru alls tíundu verðlaunin sem Dixit hefur fengið frá 2009.

Spilið gengur út á að leikmenn skiptast á að vera sögumenn. Sögumaðurinn velur spjald af hendi og notar orð, setningu, hljóð, málshátt eða bara hvað sem er til að lýsa spjaldinu sínu. Það eru í raun og veru engin takmörk fyrir því hvað má segja og hægt er að sækja innblástur í ljóð, söngva, kvikmyndir, bókmenntir o.s.frv. Hinir leikmennirnir velja eitt af sínum spilum sem þeim finnst passa við lýsingu sögumannsins. Allir leggja spilið sem þeir völdu á hvolf, sögumaðurinn stokkar spilin og snýr þeim svo upp. Þá eiga allir að reyna að giska hvaða spjald sögumaðurinn á. Ef enginn giskar á rétt spjald — eða allir giska á það — þá fær sögumaðurinn engin stig. Kúnstin fyrir sögumanninn er því að segja eitthvað sem hvorki segir of mikið né of lítið til um hvað er á spjaldinu, þannig að sem líklegast verði að einhverjir leikmenn kjósi rétt en ekki allir.

Spilið inniheldur 84 gullfalleg spjöld með mismunandi myndum eftir listakonuna Marie Cardouat sem kitla ýmindunaraflið með, oft á tíðum, hnyttnum og óútreiknanlegaum afleiðingum.

Dixit er smellið og skemmtilegt spil fyrir alla, jafnt unga sem aldna.

Tékkaðu líka á:
Dixit Odyssey

Innihald

- Eitt leikborð
- 84 spjöld
- 36 atkvæðiskubbar í 6 mismunandi litum sem eru númeraðir frá 1 til 6
- 6 kanínur úr tré
- íslenskar leikreglur

Höfundur: Jean-Louis Roubira
Framleiðandi: Asmodée
Aldur

8+

- Fyrir 3-6 leikmenn
- Spilatími um 30 mín

Vörunúmer

49-1051

Leiðbeiningar
Verð: 6.990 kr. Bæta í körfu