A A A
English
Póstlisti

Skráið ykkur á póstlista nordicGames.

Skrá
Fréttir
15.12.2011
Nýjar vörur frá Days of Wonder

Vorum að fá í hús hið sívinsæla borðspil Memoir '44 og tvær Ticket to Ride viðbætur frá Days of Wonder: Memoir '44 Vinsælt 2ja manna herkænskuspil Memoir '44 er grunnspilið í margverðlaunaðri herkænskuspilalínu. Um er að ræða einstakt sögulegt borðspil sem líkir eftir bardögum úr seinni heimstyrjöldinni. Leikmenn stýra flokki plasthermanna í bardögum úr seinni heimstyrjöldinni á stóru ...

5.12.2011
Ný Disney púsl frá King

Vorum að fá í hús glæsileg 50-100 bita Disney/Pixar púsl og 3 í pakka: Cars og Bangsímon 3 í pakka 3 púsl í pakka frá Disney með flottum myndum af Lightning McQueen og bílavinum hans annars vegar og Bangsímon og vinum hans hins vegar. Mismunandi bitastærð er á púslunum og þannig getur barnið þreifað sig áfram frá því auðveldasta (4 bitar) til erfiðasta (16 bitar) 50-100 bita Disney/Pi...

28.11.2011
Ný púsl frá Castorland

Vorum að fá í hús fullt af flottum og skemmtilegum púslum frá Castorland: Barnapúsl Litrík og skemmtileg 30-120 bita púsl fyrir 3ja-5 ára og upp úr. Öll börn geta fundið eitthvað fyrir sig í þessari fjölbreyttu sendingu; til dæmis spennandi H.C. Andersen ævintýri, töff tryllitæki, flott fantasíupúsl, stórar vinnuvélar og dúllulega hvolpa og kettlinga. Hér er hægt að finna hina fullkomnu jó...

Fjölskylduspil
Jungle Speed

Æsispennandi og hratt spil þar sem lögmál frumskógarins eru allsráðandi. Hér gildir að vera með athyglina í lagi og gott viðbragð.

Jungle Speed var fundið upp fyrir um 3000 árum síðan í hinni suðrænu Spidopotamíu af Abouloubou ættbálkinum. Aboulouboumenn völdu sér höfðingja með því að nota hefðbundið spil sem spilað var með tröllvöxnum laufblöðum gúmmítrjáa. Spilinu fylgja ekki lengur gúmmílaufblöð heldur 80 spjöld með mismunandi táknum sem er skipt á milli leikmanna og látin snúa á hvolf. Hið heilaga trékefli er sett í miðjuna og leikmenn fletta síðan einu spili í einu. Ef samskonar tákn koma upp hjá tveimur eða fleiri leikmönnum þá heygja þeir einvígi. Í því keppast þeir við að ná trékeflinu en sá sem tapar verður að taka upp bunka hins. Markmið spilsins er að vera fyrsti leikmaðurinn sem nær að losa sig við öll spjöldin sín og vera útnefndur höfðingi Abouloubou.

Varúð! Leikmenn geta fundið villimanninn í sér og togast um keflið eins og apar en mikilvægast er þó umfram allt að taka reglurnar ekki of hátíðlega og skemmta sér.

Getur þú orðið hinn mikli óviðjafnalegi spámaður sem baðar sig í óheftu oflofi fjölskyldu og vina?

Innihald

- 1 trékefli
- 80 spjöld
- poki til að geyma spilið í
- íslenskar spilareglur

Framleiðandi: Asmodee
Aldur

7+

Fyrir 2-10 leikmenn

Vörunúmer

49-1042

Leiðbeiningar
Verð: 3.990 kr. Bæta í körfu