A A A
English
Póstlisti

Skráið ykkur á póstlista nordicGames.

Skrá
Fréttir
15.12.2011
Nýjar vörur frá Days of Wonder

Vorum að fá í hús hið sívinsæla borðspil Memoir '44 og tvær Ticket to Ride viðbætur frá Days of Wonder: Memoir '44 Vinsælt 2ja manna herkænskuspil Memoir '44 er grunnspilið í margverðlaunaðri herkænskuspilalínu. Um er að ræða einstakt sögulegt borðspil sem líkir eftir bardögum úr seinni heimstyrjöldinni. Leikmenn stýra flokki plasthermanna í bardögum úr seinni heimstyrjöldinni á stóru ...

5.12.2011
Ný Disney púsl frá King

Vorum að fá í hús glæsileg 50-100 bita Disney/Pixar púsl og 3 í pakka: Cars og Bangsímon 3 í pakka 3 púsl í pakka frá Disney með flottum myndum af Lightning McQueen og bílavinum hans annars vegar og Bangsímon og vinum hans hins vegar. Mismunandi bitastærð er á púslunum og þannig getur barnið þreifað sig áfram frá því auðveldasta (4 bitar) til erfiðasta (16 bitar) 50-100 bita Disney/Pi...

28.11.2011
Ný púsl frá Castorland

Vorum að fá í hús fullt af flottum og skemmtilegum púslum frá Castorland: Barnapúsl Litrík og skemmtileg 30-120 bita púsl fyrir 3ja-5 ára og upp úr. Öll börn geta fundið eitthvað fyrir sig í þessari fjölbreyttu sendingu; til dæmis spennandi H.C. Andersen ævintýri, töff tryllitæki, flott fantasíupúsl, stórar vinnuvélar og dúllulega hvolpa og kettlinga. Hér er hægt að finna hina fullkomnu jó...

Fjölskylduspil
Memoir '44 - Nýtt!

Vinsælt 2ja manna herkænskuspil

Memoir '44 er grunnspilið í margverðlaunaðri herkænskuspilalínu. Um er að ræða einstakt sögulegt borðspil sem líkir eftir bardögum úr seinni heimstyrjöldinni. Leikmenn stýra flokki plasthermanna í bardögum úr seinni heimstyrjöldinni á stóru tvöföldu leikborði. Hver bardagi er eftirlíking sögulegs bardaga á svæðinu, hermanna og markmiða þeirra.

Spilið er auðvelt að læra og gengur vel fyrir sig en til að vinna þarf herkænsku, heppni í teningakasti og herskáa en sveigjanlega bardagaáætlun.

Innihald

- Tvöfalt leikborð
- 144 heríhlutir
- 44 landslagsreitir
- 66 skipunarspjöld
- 9 samantektarspjöld
- 8 bardagateningar
- 2 spjaldastatíf
- bæklingur með leikreglum og bardagalýsingum (m.a. á ensku).

Höfundur: Richard Borg
Framleiðandi: Days of Wonder
Aldur

8+

- Fyrir 2 leikmenn
- Spilatími: 30-60 mín

Vörunúmer

49-7301

Leiðbeiningar
Verð: 11.990 kr. Bæta í körfu