Skemmtilegur innileikur frá Lexibook. Spilið fótbolta innandyra með Aerofoot fótboltasvifdisknum og meðfylgjandi mörkum. Setja þarf mörkin saman og rafhlöður í svifdiskinn (4 x AA rafhlöður – ekki innifaldar). Diskurinn rennur svo léttilega um gólfin að hann virðist svífa og er með höggpúðum svo hann skaði ekki veggi eða húsgögn. Einnig eru marglit ljós á honum sem gerir það að frábærum samkvæmisleik í myrkri.
Lexibook framleiðir aðallega margvísleg raftæki fyrir fyrirtæki og einstaklinga, en einnig leikföng og hljóðfæri fyrir börn með þekktum merkjum, s.s. Disney, Marvel, Barbie og Paw Patrol.