Perlusett frá SES sem inniheldur sjálflýsandi perlur. Inniheldur 1200 perlur, blöndu af lituðum og sjálflýsandi perlum, 2 perlubretti og straupappír. Þegar búið er að perla myndina og fá einhvern fullorðinn til að strauja yfir, er hægt að hengja hana upp í svefnherberginu og hún lýsir í myrkri.
Beedz Iron-on Beads vörulínan frá SES inniheldur margs konar vörur tengdum plastperlum sem hægt er að föndra úr ýmis konar listaverk.