Clicformers Bleikt og blómlegt 100 stk ,

Clicformers Blossom Set 100 pcs

Sætt 100 bita Clicformers sett frá Clics Toys úr Blossom vörulínunni sem inniheldur sett í mismunandi stærðum með fallegum smellukubbum í björtum pastellitum. Með fylgir leiðbeiningabæklingur þar sem sýnt er hvernig má búa til fíl, páfugl, íkorna, krabba eða önnur dýr, stór og smá, með því að smella saman kubbunum. Reyndar er hægt að byggja heilu dýragarðanna og farartæki með Clicformers. Einnig geta hugmyndaríkir krakkar hannað eigin sköpunarverk og látið ímyndunaraflið leika lausum hala.

Clicformers eru skemmtileg og litrík byggingarleikföng fyrir börn, 4 ára og upp úr, frá Belgíska framleiðandanum Clics Toys. Með þeim er hægt að smella, stafla, krækja og fella saman. Þessi frábæru smelluleikföng eru þroskandi og hafa lærdómsgildi og auðga ímyndunarafl barna. Börnin læra að fara eftir leiðbeiningum, þekkja liti og þjálfa rýmisgreind og fínhreyfingar. Clicformers eru leikföng sem vaxa með barninu því alltaf er hægt að búa til flóknari og meira krefjandi verkefni. Hægt er að nota Clicformers og Magformers sett saman.

Aldur:
Vörunúmer: 805002
Þyngd: 1237 g
Stærð pakkningar: 49.9 × 7.3 × 39.9 cm
Útgefandi:
Innihald:
• 100 smellukubbar
• Leiðbeiningar
Product ID: 19124 Categories: , . Merki: , , , , , , .