Codenames Undirheimar , , , , ,

Stranglega bannað börnum!

Eruð þið tilbúin til að kafa ofan í myrkustu afkima huga ykkar? Codenames Undirheimar er eins og grunnspilið Codenames að því leyti að leikmenn skipta sér í lið og leika njósnameistara sem gefa vísbendingar og njósnara sem reyna að giska á rétt orð.

Munurinn er sá að Codenames Undirheimar inniheldur dulnefni sem eru alls ekki við hæfi barna undir 18 ára aldri!

Vísbendingar njósnameistarans og hugmyndaflug njósnarana þurfa að leggjast á lægsta plan þar sem báðir aðilar geta skoðað undirheima huga sinna og samfélagsins.

 

Látið fúkyrði og villtar fantasíur fljúga og gefið ykkur lausan tauminn með Codenames Undirheimar! Hentar 4-8 leikmönnum, 18 ára og eldri.

Fjöldi leikmanna: 4-8+
Leiktími: 15 mín
Þyngd: 439 g
Stærð pakkningar: 24 x 17 x 6 cm
Hönnuður:
Innihald:
• 16 njósnaraspjöld í tveimur litum
• 1 gagnnjósnaraspjald
• 7 almenn borgaraspjöld
• 1 leigumorðingjaspjald
• 40 táknlykilsspjöld
• 1 leikreglur
• 1 spjaldastandur
• 1 tímamælir
• 195 spjöld með 390 dulnefnum
• 5 auð spjöld
islenska