Sætur, lítill og vandaður kassagítar úr plasti frá Lexibook. Gítarinn er skreyttur myndum af Disney prinsessum og er 53 cm á lengd. Honum fylgja leiðbeiningar sem fara yfir grunnatriðin til að læra að spila (á ensku). Frábært hljóðfæri fyrir byrjendur í tónlist og Disney aðdáendur.
Lexibook framleiðir aðallega margvísleg raftæki fyrir fyrirtæki og einstaklinga, en einnig leikföng og hljóðfæri fyrir börn með þekktum merkjum, s.s. Disney, Marvel, Barbie og Paw Patrol.