Skissuhauskúpa
Litríkt 1000 bita púsl frá Heye eftir listamanninn Jon Burgerman sem blandar saman ýmis konar stílbrögðum úr hefðbundinni myndlist og götulist á húmorískan hátt, oft með vísan í dægurmenningu. En einnig finnst honum gaman að krota alls kyns furðurverur eins og sjá má hér en til að gera allt enn furðulegra hefur hann raðað krúttlegu verunum í formi höfuðkúpu.