Fjarstýrður Barnabíll Mercedes AMG SL 65 Svartur ,

Glæsilegur og vandaður fjarstýrður barnabíll frá Jamara fyrir börn, 3 ára og eldri. Svört eftirlíking af gerðinni Mercedes Benz-AMG SL 65 á skalanum 1:4. Þægilegt sæti með öryggisbelti og stuðningi við bak. Tekur rólega af stað og hefur 2 hraðastillingar. Einnig hægt að stjórna með 2,4 GHz fjarstýringu og hefur þá 3 hraðastillingar. 2 öflugir mótorar og endingargóðar hleðslurafhlöður. USB/AUX tengi, ásamt porti fyrir SD minniskort. Skotthólf og handfang að framan til að draga bílinn áfram. Með ljósum og hljóðum. Notist utandyra á jöfnu undirlagi. Tekur um 8-10 klst að hlaðast og ein hleðsla endist í allt að 90 mín. Hleðslurafhlöður í bílinn innifaldar en ekki rafhlöður í fjarstýringuna (2xAAA). Stærð: 120 x 72 x 50 cm.

Aldur:
Vörunúmer: 460295
Útgefandi:
Innihald:
• Bíll með lykli
• Fjarstýring 2,4 GHz
• Rafhlöður
• Hleðslutæki
• Leiðbeiningar

Product ID: 29168 Categories: , . Merki: , , , .