3 Tindar
Glæsilegt 1000 bita púsl frá Heye með þremur auðþekktum tindum í Dolomites fjallgarðinum í ítölsku ölpunum. Þeir eru hluti af þjóðgarð sem er vinsæll á meðal ferðamanna og útivistarfólks, fjallgöngur, fjallaklifur, svifflug, hjólreiðar og skíði eru sérlega vinsælar íþróttir á svæðinu. Árlega er haldið Dolomites-hjólreiðamaraþon. Púslið er aflangt og fæst í aflöngum kassa.