Knex Education Eðlisfræði rússíbana –
Veglegt byggingarsett með rúmlega 2000 einingum. Skemmtileg leið fyrir menntaskólanemendur til að læra eðlisfræði með því að byggja sína eigin rússíbana, skábrautir og lykkjukerfi. Þetta þjálfar nemendur í vísindalegum vinnubrögðum, greiningu breytna og lausnamiðaðri hugsun. Hægt er að byggja 11 mismunandi rússíbana úr einingunum sem sumir ganga fyrir rafhlöðuknúnum mótor. Rafhlöður fylgja ekki með. Leikfang með fræðslugildi sem nýtist í skólastofunni í tengslum við svokölluð STEM kennslufræði þar sem lögð er áhersla á vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði. Með fylgir diskur með leiðbeiningum fyrir kennara.