Nett og handhægt pókersett með fimm póker teningum
Hver póker teningur er með sex tákn: ás, kóng, drottningu, gosa, tíu og níu. Leikmenn kasta teningunum, en mega svo taka teninga frá og kasta aftur. Hver leikmaður má kasta þrisvar í hverri umferð. Þegar fyrsti leikmaðurinn er orðinn sáttur við köst og útkomu er röðin komin að öðrum leikmönnum. Þeir reyna að ná eins góðri útkomu og hægt er í eins mörgum köstum og fyrsti leikmaðurinn. Fyrsti leikmaðurinn stýrir því leyfilegum fjölda kasta í hverri umferð.
Skemmtilegt spil sem er hægt að spila á marga vegu og í litlum sem stórum hópum. Tilvalið í sumarbústaðinn og ferðalagið!