Bjargaðu ísbílnum!
Þrautarspil þar sem þú ert að reyna að koma hvíta ísbílnum út úr umferðarhnútnum og gegnum hliðið á spilinu. Það er ekki eins auðvelt og það hljómar því aðrir bílar eru fyrir útganginum. Þitt verkefni er að færa alla bílana frá, fram og til baka, þannig að þú losnar út úr umferðarhnútnum. Þegar leiðin er greið sleppur ísbílinn þinn út. Barnvæn útgáfa af þessu vinsæla spili.
– Fjögur erfiðleikastig eru á þrautunum.