Sequin Art – 3D: Cat
Skemmtilegt föndursett sem glitrar og tindrar þér til augnayndis. Festu litríkar sindrandi pallíettur á frauðformið eftir meðfylgjandi mynstri með títuprjónunum svo úr verði krúttlegur köttur. Frábært verkefni sem róar hugann og æfir nákvæmni og fínhreyfingar, auk þess sem til verður fallegur og eigulegur skrautmunur.
3D vörulínan frá Sequin Art inniheldur falleg pallíettuföndursett með frauðformum sem skreytt eru með pallíettunum svo úr verða fallegir þrívíddarmunir sem glitra og fegra umhverfi sitt.