TileBlox Regnbogasett 42 bitar

TileBlox Rainbow 42 pcs Set

Litríkt 42 bita byggingarsett frá Tileblox sem inniheldur fallega segulkubba í regnbogalitunum ásamt leiðbeiningum (sem þarf ekki að fara eftir frekar en maður vill). Inniheldur þríhyrninga, ferninga, trapísur og rétthyrninga. Frábært sett fyrir byrjendur sem geta lært og leikið sér samtímis.

Tileblox vörurnar líkjast nokkuð Clicformers smellukubbunum og Magformers seglunum, enda frá sömu framleiðendum sem tryggja gæði og vöruhönnun sem örvar huga barna. Einnig hafa Tileblox vörurnar svipað lærdómsgildi en hönnun þeirra er hugsuð út frá svonefndum S.T.E.M. fræðum sem veitir börnum undirstöðu í ýmsum raungreinum; vísindum (science), tækni (technology), verkfræði (engineering) og stærðfræði (mathematics).

Aldur:
Vörunúmer: 1030004
Útgefandi:
Innihald:
• 42 bitar
• Leiðbeiningar