Wasgij Buslugangur – 150 bitar
Pípararnir eru mættir með verkfærin í verkefnið, að laga leka. En þegar þeir koma á staðinn sjá þeir að sennilega þurfa þeir að ná í stærri verkfæri. Hvernig kemur þetta allt litla stráknum á hjólinu fyrir sjónir?
Skondið og óhefðbundið 150 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki myndina sem á að púsla heldur gefur vísbendingu um hana. Þegar þú púslar Wasgij Original púsl, sérðu atburðinn á kassanum frá sjónarhorni persónanna á myndinni. Skemmtu þér við að leysa þessa krefjandi gátu með ímyndunaraflið að vopni.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!