Wasgij hjá dýralækninum – 1000 bitar
Allir gæludýraeigendurnir eru mættir með bestu vini sína til dýralæknis og bíða rólegir í biðstofunni eftir að röðin komi að þeim. Eða hvað? Af hverju eru allir svona skelka??ir á svipinn? Hvað gæti hafa komið þeim í slíkt uppnám og dýralækninum einnig? Það er þitt verkefni að komast að því…
Stórskemmtilegt og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur gefur vísbendingu um hana. Sá sem púslar þarf því að nota ýmindunaraflið til að leysa gátuna. Ögrunin felst í því að lokaútkoman er í raun ekki sú sama og myndin utaná kassanum en sýnir þess í stað sjónarhorn persónanna sem þar eru.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!