Wasgij Original 29 Brúðkaupssýki 1000 bitar , ,

Catching wedding fever 1000 pcs

Þegar búið er að skiptast á hringum og fögrum fyrirheitum, tárin þerruð og presturinn hefur blessað hjónabandið, er kominn tími til að sletta úr klaufunum. Það er fjör í brúðkaupsveislunni og nú er komið að því að kasta vendinum en skyndilega verður óvænt uppákoma til þess að gera gestunum bilt við.

Skondið og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki myndina sem á að púsla heldur gefur vísbendingu um hana. Þegar þú púslar Wasgij Original púsl, sérðu atburðinn á kassanum frá sjónarhorni persónanna á myndinni. Skemmtu þér við að leysa þessa krefjandi gátu með ímyndunaraflið að vopni.

Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!

Aldur:
Fjöldi Púslbita:
Myndefni púsls:
Vörunúmer: 19159
Stærð: Stærð púslaðs púsls: 68x49 cm
Þyngd: 790 g
Stærð pakkningar: 27x37x7 cm
Framleiðandi Púsls:
Útgefandi:
Innihald:
1000 púslbitar
Product ID: 13573 Categories: , , . Merki: , , , , .