The Proposal 1000 pcs
Það er verið að fremja innbrot í klukkubúðinni. Allir standa stjarfir en innbrotsþjófurinn hefur gripið unga dömu, e.t.v. til að nota sem gísl. Hvað gengur honum til? Hvað gerist næst?!
Skondið og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki lokaútkomu heldur gefur hann vísbendingu um hana. Þar er ákveðin atburðarás í farvegi og púslaða púslið sýnir hvað gerist í næstu andrá. Skemmtu þér við að leysa þessa krefjandi gátu með ímyndunaraflið að vopni.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!