Sein bókun 1000 bitar
Stundum þegar fríið er planað með stuttum fyrirvara, tekur maður ódýrasta kostinn sem er í boði. Þetta fólk hefur bókað sig í ódýra ferð í Edelweiss kastalann… hvað bíður þeirra þar?
Skondið og óhefðbundið 1000 bita púsluspil frá Jumbo. Kassinn sýnir ekki myndina sem á að púsla heldur gefur vísbendingu um hana. Þegar þú púslar Wasgij Original púsl, sérðu atburðinn á kassanum frá sjónarhorni persónanna á myndinni. Skemmtu þér við að leysa þessa krefjandi gátu með ímyndunaraflið að vopni.
Wasgij Retro serían er endurútáfa af fyrstu Wasgij púslunum í nýjum umbúðum.
Wasgij púslin eru geysivinsæl um heim allan og skyldueign á heimili metnaðarfullra púslara!