Spennandi samvinnuspil frá Thames & Kosmos fyrir 1-4 leikmenn, 16 ára og eldri sem gengur út á að sleppa út úr herbergi. Þið leikið löggur sem hafa verið reknar úr starfi en fáið skyndileg skilaboð sem draga ykkur inn í sakamál. Þremur manneskjum hefur verið rænt og þið þurfið að leita þeirra á yfirgefnu geðveikrahæli og ná sökudólginum innan tímamarka. Einfalt spil sem spilað er í þremur köflum.