Litríkur afgreiðslukassi frá Klein með skjá, skanna, peningaskúffu og pappírsrúllu til að prenta kvittanir á. Einnig fylgja leikpeningar; evrur í seðlum og mynt, auk greiðslukorts og strikamerkja til að skanna. Tilvalið í búðarleiki sem örva félagsþroska barna og hjálpa þeim jafnvel í reikningi. Gengur fyrir 2 AAA rafhlöðum (ekki innifaldar).