Spennandi viðskipta- og herkænskuspil fyrir 2-4 leikmenn, 12 ára og eldri, frá Thames & Kosmos. Leikmenn keppast við að byggja upp iðnaðarveldi sín og samfélög á eyjum. Ekki þarf aðeins að halda sjóhernum og viðskiptamálum í góðu lagi, heldur þarf einnig að huga að ánægju eyjarskeggja sem krefjast meiri munaðs eftir því sem samfélag þeirra þróast. Gætið þess að jöfn skipting sé á bændum, iðnaðarfólki, verkfræðingum og fjárfestum en hafið líka auga með samkeppninni því keppinautarnir geta sett strik í reikninginn hvenær sem er. Hvaða eyjarsamfélög munu blómstra og hver falla?