Asískar olíupappírsregnhlífar Colors of the World
Flott 1000 bita púsl frá EuroGraphics með mynd af sérstökum regn- eða sólhlífum sem þekkjast í ýmsum Asíulöndum. Hlífarnar eru gerðar úr vatnsheldum olíubornum pappír, listilega skreyttar og eru oft hluti af brúðarskrúða.