Berlin Digital Mosic by Charis Tsevis
Skemmtilegt 1000 bita púsl frá Schmidt með mynd eftir gríska listamanninn Charis Tsevis. Hann er þekktur fyrir stafrænu mósaíkverkin sín en þá tekur hann mikið magn af ljósmyndum og setur saman í eina stóra mynd eins og þessa af Brandenborgarhliðinu í Berlín. Ef myndin er vandlega skoðuð er hægt að greina minni myndirnar. Púsluð stærð 69×49 cm.