Einföld ferðaútgáfa af Bingó í álboxi, fyrir 3-10 leikmenn, 8 ára og eldri. Einn leikmaðurinn er valinn sem bingómeistari. Hann dregur talnaskífu, les töluna og leggur skífuna yfir samsvarandi tölu á borðinu sínu. Hinir leikmennirnir leggja einnig skífu yfir töluna ef hún er á spjaldinu þeirra. Sá fyrsti sem myndar lárétta, lóðrétta eða skásetta röð og kallar Bingó sigrar.