Fallegt 1000 bita púsl frá Educa með mynd frá Burano sem er ein af eyjunum við Feneyjalónið. Eyjan er þekkt fyrir fagurgerða knipplinga og litrík hús eins og sjá má á myndinni. Púsluð stærð er ca. 68 x 48 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.