Redmaster DIY Barrel 50 pcs
Sniðugt byggingarsett fyrir börn. Í því eru verkfæri, spýtur, skrúfur, boltar og tappar sem nota má fyrir hjól. Hægt er að byggja hvað sem manni dettur í hug, góð leið til að virkja skapandi hugsun, æfa fínhreyfingar og rökhugsun.
Janod er franskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í vönduðum og endingargóðum leikföngum sem kveikja neista í huga barna og örva ímyndunaraflið.