Falleg tréhrista fyrir ungbörn með litríkum perlum og þægilegu handfangi. Stærð: 12 cm.
Þýska fyrirtækið Selecta framleiðir falleg og vönduð tréleikföng fyrir yngstu börnin sem örva sjón og heyrn. Allar vörurnar eru öryggisprófaðar, málaðar með umhverfisvænum vatnslitum og þaktar býflugnavaxi sem gerir þær endingarbetri. Selecta notar aðeins hráefni sem stuðla að sjálfbærri nýtingu skóga.