Clicformers Rautt Sett 25 stk ,

Clicformers Craft Set Red 2in1 25 pcs

Flott 25 bita Clicformers byrjunarsett með rauðu litaþema. Með fylgir leiðbeiningabæklingur til að búa til flottan flamingóa, flugvél eða önnur dýr og tæki. Einnig er hægt að sleppa ímyndunaraflinu lausu og búa til eigið sköpunarverk.

Clicformers eru skemmtileg og litrík byggingarleikföng fyrir börn, 4 ára og upp úr, frá Belgíska framleiðandanum Clics Toys. Með þeim er hægt að smella, stafla, krækja og fella saman. Þessi frábæru smelluleikföng eru þroskandi og hafa lærdómsgildi og auðga ímyndunarafl barna. Börnin læra að fara eftir leiðbeiningum, þekkja liti og þjálfa rýmisgreind og fínhreyfingar. Clicformers eru leikföng sem vaxa með barninu því alltaf er hægt að búa til flóknari og meira krefjandi verkefni. Hægt er að nota Clicformers og Magformers sett saman.

Aldur:
Vörunúmer: 807001
Útgefandi:
Innihald:
• 25 smellukubbar
• Leiðbeiningar

Product ID: 19157 Categories: , . Merki: , , , , , .