Hárprúpu Colour‘n‘style dúkkurnar frá Crayola er hægt að skreyta, bæði andlit þeirra og fatnað, með meðfylgjandi tússlitum. Auðvelt er svo að þvo litina af og byrja upp á nýtt. Rose er sérlega mikið fyrir að gera sig fína og henni fylgja 6 tússlitir, 4 bolir, límmiðar og greiða.
Crayola er rótgróið og vel þekkt bandarískt fyrirtæki stofnað árið 1885. Crayola er einn helsti framleiðandi margívslegra lita, s.s. vaxlita, trélita og tússlitra, sem og litatengdra vara; föndurmálningar, litabóka o.fl. Flesta litina er auðvelt að þvo af húð, fatnaði og flestum yfirborðum sem er ekki pappír.