Dancing Houses in Amsterdam
Flott 1000 bita púsl frá Educa með mynd af hinum svonefndu dansandi húsum í Amsterdam en þau eru kölluð það vegna þess að þau eru byggð á mýri og dúa á stoðunum. Púsluð stærð er ca. 68 x 48 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.



