Skemmtilegur púslpakki frá Educa með Disney þema fyrir börn (ca. 4-8 ára). Inniheldur fjögur púsl (50/80/100/150 bitar) með myndum af persónum úr ýmsum Disney myndum (Skógarlíf, Pétur Pan, 101 Dalmatíuhundur og Lísa í Undralandi). Púsluð stærð er 34 x 24 cm (púslbitarnir minnka eftir því sem þeim fjölgar).
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.