Dixit 10th Anniversary ,

Dixit 10 ára afmælisútgáfa viðbót 9

Gerðu Dixit spilið þitt enn skemmtilegra með þessari glæsilegu viðbót sem inniheldur 84 myndskreytt spjöld sem kitla ímyndunaraflið sem aldrei fyrr. Þessi flotta afmælisútgáfa er myndskreytt af stórum hópi listamanna sem allir hafa komið að myndskreytingum fyrri Dixit viðbóta. Innblástur þeirra að þessu sinni er ævintýri og goðsagnir hvaðanæva úr heiminum.

Dixit er margverðlaunað fjölskyldu- og partýspil sem hefur farið sigurför um heiminn. Sögumaðurinn velur spjald af hendi og notar t.d. orð, setningu, hljóð eða málshátt til að lýsa spjaldinu sínu. Hinir leikmennirnir velja hvaða spjald passar best við lýsinguna.

Athugið! Þetta er ekki sjálfstætt spil heldur spilast með Dixit grunnspili.

Fjöldi leikmanna: 3-6
Leiktími: 30 mín
Aldur:
Vörunúmer: 1068
Þyngd: 363 gr
Stærð pakkningar: 4,6 x 12,2 x 27,7 sm
Hönnuður:
Útgefandi:
Innihald:
- 84 spil
- Leikreglur
Product ID: 18975 Categories: , . Merki: , , , , , .