Jolasveinar_2_Fotboltalid_1000_1
Jolasveinar_2_Fotboltalid_1000_1Puzzle_1000_Jolasveinar_Fotboltalid_2

Fótboltalið íslensku jólasveinanna , ,

Fallegt og hátíðlegt 1000 bita púsl með mynd af grallaralegu íslensku jólasveinunum.

Fótboltalið íslensku jólasveinanna! Skemmtilegt jólapúsl með liðsmynd af íslensku jólasveinunum þar sem þeir stilla sér upp saman eftir vel heppnaðan fótboltaleik. Ekki vitum við hvernig þeim gekk, eða við hverja þeir kepptu, en eitt er víst að þeir höfðu afskaplega gaman af. Auðvita eins og sannri fjölskyldu sæmir voru Grýla, Leppalúði og jólakötturinn mætt til að styðja sína sveina. Púsl sem öll fjölskyldan getur sannarlega haft gaman af yfir jólahátíðina.

Myndin er teiknuð af listamanninum Brian Pilkington sem er þjóðkunnur fyrir teikningar sínar og snjallar bókaskreytingar. Bækur hans um íslenska þjóðtrú og tröll hafa vakið verðskuldaða athygli og mótað sýn þjóðarinnar á hérlendum kynjaverum.

Þetta er annað púslið í seríunni um íslensku jólasveinanna

Aldur:
Fjöldi Púslbita:
Vörunúmer: 47-1052
Stærð: 48,5 x 68 sm
Þyngd: 770 gr
Stærð pakkningar: 27 x 36,5 x 6 sm
Framleiðandi Púsls:
Listamaður púsls:
Útgefandi:
Product ID: 3844 Categories: , , . Merki: .