Vinaskart
Flott sett til að vefa og flétta (og rækta) vináttubönd. Í pakkanum eru 4 litlir vefstólar, 2 ferhyrndir og 2 kringlóttir, með mynstri sem sýnir hvernig raða skal litaða tvinnanum til að fá tiltekin mynstur í armböndin. Einnig er hægt að skreyta armböndin með perlum.
Alex DIY Wear línan býður upp á fjöldamörg skemmtileg verkefni þar sem krakkar geta föndrað eigin skartgripi og skraut.



