Flott 4000 bita púsl frá Educa með korti sem sýnir lönd og ríki heims ásamt þjóðfánum þeirra. Púsluð stærð er ca. 136 x 96 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.