Dogs Collage
Skemmtilegt 500 bita púsl frá Educa með klippimyndum af mismunandi hundum af ýmsum stærðum og gerðum. Púsluð stærð er ca. 48 x 34 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.