Fallegt 5000 bita púsl frá Educa með mynd af húsi við friðsælt vatn þar sem er ríkulegt dýra- og gróðurlíf. Púsluð stærð er ca. 157 x 107 cm.
Educa Borras er einn þekktasti spila-og leikfangaframleiðandi Spánar en forveri þess, Borras Plana, var stofnaður árið 1894. Í dag er fyrirtækið leiðandi í framleiðslu á vönduðum spilum, púslum, leikjum og töfrabrelluboxum.